Myndir
Kæru ættingjar
Hér kemur enn ein myndaserían af ættarmótinu.
Þessar koma frá Bergsteini Björgúlfssyni og er einnig hægt að nálægast linkinn hérna til hliðar undir myndir.
http://gallery.me.com/besti1#100012&bgcolor=black&view=grid
Myndir
Búið að er að setja inn fleiri myndir af ættarmótinu góða.
Þessar myndir koma frá Stefáni Stefánssyni og eru þær hér til hliðar undir "myndir" og "Ættarmótsmyndir- Stefán".
Njótið
Myndir
Takk fyrir síðast. Vona að allir hafi skemmt sér vel.
Ég tók nokkrar myndir af ættarmótinu, þó aðallega af Rósamundu afkomendum.
En auðvitað leynast þarna aðrir afkomendur
Smellið á linkinn hér vinstra megin undir "Myndir"
ef þið komist ekki inn á hann þá er þetta linkurinn: http://public.fotki.com/dagsbrun/ttarmt/
Njótið
kveðja Íris Hrund
Ættarmótið
Kæru ættingjar!
Nú fer senn að líða að ættarmótinu okkar sem verður haldið að Efri-Vík í Meðallandi helgina 27. – 29. júní. Formleg dagskrá hefst að morgni laugardags, en vonandi sjáum við sem flesta strax á föstudagskvöldi.
Leiðin að Efri-Vík frá Reykjavík er eftirfarandi:
Ekið eftir Suðurlandsvegi austur að Kirkjubæjarklaustri. Áður en farið er yfir brúna yfir Skaftá er beygt til hægri inná Meðallandsveg, nr. 204. Ekið u.þ.b. 5 km. eftir Meðallandsvegi þar til komið er að Efri-Vík (Hótel Laka). Þetta er u.þ.b. 3ja klst. akstur frá Reykjavík.
Dagskrá mótsins verður eitthvað á þessa leið:
10:00-12:00 Skráning við hlöðuna og afhending barmmerkja
12:00 Setning mótsins
13:00 Ratleikur
14:30 Ferð að Efri-Ey á einkabílum
16:00 Dagsbrúnarundrin leika sér
18:00 Hópmyndataka
Grillveisla í hlöðunni með kvöldvöku, hæfileikakeppni, samsöng og fleira í léttum dúr.
Brekkusöngur við varðeldinn í lokin
Það er okkar ósk að sem flestir skrái sig í hæfileikakeppnina. Við efumst ekki um að í ættinni er mikill fjöldi hæfileikafólks á öllum aldri. Það er hægt að keppa í hverju því sem fólki dettur í hug.
Í grillveislunni verður boðið uppá lambakjöt, kartöflusalat, hrásalat og sósu. Ef einhverji vilja grilla eitthvað annað, t.d. pylsur fyrir börnin, þurfa þeir að koma með það að heiman, en ábyggilega verður hægt að koma því fyrir á grillinu líka. Einungis verður boðið uppá kvöldmat á laugardagskvöldinu. Aðrar máltíðir þarf fólk að sjá um sjálft. Einnig þarf fólk að sjá um drykki.
Eflaust verða flestir með myndavél meðferðis og óskum við eftir því að fólk sendi myndir til síns tengiliðs eftir mótið svo hægt verði að koma þeim inná bloggsíðuna okkar. Það sama á við um þá sem verða með videotökuvél, hver veit nema það verði veitt verðlaun fyrir bestu heimildamyndina.
Tjaldstæðið kostar 1.000 kr. pr. tjald hver nótt.
Mótsgjald hefur verið ákveðið 2.500 kr. á hvern þann sem fæddur er 1996 eða fyrr, þ.e. verða 12 ára á árinu.
Vonumst til að sjá sem flesta.
kv undirbúningsnefnd
Afráðið hefur verið að efna til ættarmóts niðja Aldísar Stefánsdóttur (1868-1945) að Efri-Vík í Meðallandi helgina 27-29. júní en á næsta ári verða 140 ár liðin frá fæðingu hennar. Formleg dagskrá hefst að morgni 28.júní.
Aldís Stefánsdóttir fæddist að Efri-Ey í Meðallandi 7. des. 1868 en lést árið 1945. Barn að aldri fluttist hún með foreldrum sínum austur á land þar sem “smjör draup af hverju strái”. Aldís var tvígift. Hún missti fyrri eiginmann sinn, Ármann Hildibrandsson (f. 1864), árið 1893 frá fjórum ungum börnum. Seinni eiginmaður hennar, Eiríkur Þorleifsson (f. 1869), gekk börnunum í föðurstað og saman eignuðust þau sjö börn til viðbótar. Afkomendur þessara 11 barna telja nú á 4. hundrað en 3 systkinanna eiga ekki afkomanda á lífi.
Það er kominn tími til að “Dagsbrúnarundrin”, sem er vinnuheiti undirbúnings-nefndarinnar á frændboganum, komi saman á æskuslóðum Aldísar, efli kynnin og geri sér glaðan dag í minningu forfeðra- og mæðra okkar. Tilgangur þessa fyrsta bréfs er kynning á framtakinu og að hvetja frændur og frænkur til að taka frá helgina 27.-29. júní. Við vonumst til að sjá sem flesta föstudaginn 27. júní og dvelja í Meðallandinu meðal frændfólks fram á sunnudag. Formleg dagskrá ættarmótsins mun standa allan laugardaginn og verður kappkostað að bjóða upp á dagskrá fyrir alla aldurshópa, ekki síst ungviðið. Nefndin kallar eftir skemmtiatriðum, t.d. efnilegum og liðtækum hljóðfæraleikurum, söngfuglum og öðru efnisfólki.
Ferðaþjónustubýlið að Efri-Vík er kjörinn staður til slíks mannamóts (www.efrivik.is). Þar er m.a. er boðið upp á gistingu í 15 smáhýsum sem tekin hafa verið frá fyrir okkur. Hver ættgrein mun hafa forgang að tveimur húsum sem hvert rúmar 4-5 gesti með góðu móti (grein Þorleifar er sýnu fámennust og fær aðeins forgang að einu húsi). Einnig er í boði mjög gott tjaldstæði. Þá höfum við fest okkur reisulega hlöðu sem breytt hefur verið í samkomuhús.
Í undirbúningsnefnd sitja fulltrúar ættgreinanna átta og er Dagsbrúnarfólk hvatt til að hafa samband við fulltrúa sinn, tilkynna fyrirhugaða þátttöku og fá nánari upplýsingar. Nefndin mun annars formlega láta næst heyra frá sér seinni hluta febrúarmánaðar. Við vekjum athygli á heimasíðu okkar, http://dagsbrunaraett.bloggar.is/, þar sem frekari upplýsingar og margháttaður fróðleikur liggur frammi. Þeir sem eiga í fórum sínum skemmtilegar myndir ættu að setja sig í samband við Þorstein Geirsson en hann mun hafa umsjón með heimasíðunni.
Ármann Eiríksson: Katrín Einarsdóttir, s. 421-7024 / 840-0064, katrin.einars@simnet.is
Björn Eiríksson: Júlíana Vilhjálmsdóttir, s. 555-4904 / 862-5664, kjul@visir.is
Eiríkur Ármannsson: Tómas Þór Tómasson, s. 564-3659 / 860-1036, tomas.tomasson@capacent.is
Sigurbjörg Ármannsdóttir: Sigrún Björnsdóttir, s. 586-1125 / 820-3511, logafold36@internet.is
Stefanía Ármannsdóttir: Sigríður Þóra Árdal, 566-8692 / 660-7667, sig@koggull.com
Stefán Eiríksson: Bergur Þorkelsson, s. 553-3644 / 860-9906, bergur@sjomenn.is
Þorleif Eiríksdóttir: Þór Eiríksson, s: 567-8018 / 664-3163, thore@ejs.is
Ölveig Rósamunda Eiríksdóttir: Þorsteinn Geirsson, s. 554-1011 / 897-9148, vdecaceo@gmail.com
Sjáumst í Meðallandinu í júní 2008.
Undirbúningsnefndin
Rósa 100 ára 11.ágúst 2007
hér er mynd af afkomendum Rósu, tekinn á 100 ára afmæli hennar þann 11.ágúst